3.5.2007 | 22:50
Burt með alla launaleynd, nema hjá mér!
Skelfing leiðist mér þegar skírir sómapiltar og óskatengdasynir allra mæðra gera í Armanibuxurnar sínar nánast í beinni.
Postuli Samfylkingarinnar í afnámi launaleyndar spratt endanlega alla leið útúr skápnum og skellti fast á eftir sér. Má ég vitna í nokkuð trausta heimild?
Vefþjóðviljin segir eftirfarandi í dag: (tengill á færsluna er hér)
Bjarni Ármannsson var í fréttum í gærkvöldi spurður um greiðslur samkvæmt samningi hans við fyrrverandi vinnuveitendur hans í Íslandsbanka. Hann sagði að þær væru allar trúnaðarmál.
Það er auðvitað skiljanlegt.
Æ hvað hét hann aftur bankastjórinn sem hélt ræðu á landsfundi Samfylkingarinnar fyrir hálfum mánuði og krafðist þess að launaleynd yrði bönnuð með lögum?
Eða eins og karlinn sagði: "Það er nú sitthvað, ég eða Jón skítur".
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.